Ég heiti Valgerður L. Guðmundsdóttir og er 37 ára, við hjónin eigum 4 börn.  Með þessum skrifum mínum  vonast ég til að reynsla mín gagnist öðrum og lýsi hvernig  sjúkdómurinn  er. 
Sjúkrasaga mín byrjaði fyrir um það bil fimm og hálfu ári en þá byrjaði ég að finna fyrir dofa og verkjum í hægra  læri. Frá því í nóvember 2004 hefur sjúkralega mín á spítala verið samfelld meira og minna allt fram til í júni 2006,  

Árið 2004 kom í ljós að drep var í mjaðmaliðnum á mér. Reynt var að bjarga mjaðmaliðnum með því  að senda mig í HBOT köfunarklefann (sem notaður er við kafaraveiki) í því skyni að örva blóðflæðið í liðnum. Fór ég í 40 skipti í klefann, klukkutíma í senn.

Eftir að köfunarklefinn var fullreyndur var ákveðið að bora  í lærlegginn til að hleypa súrefni inn í beinið og til að létta á sársauka og þrýstingi sem var viðvarandi. Spasmunum linnti ekki, einnig sem mikill bruni var í húð  og óbærilegur sársauki  við viðkomu á hægra læri aukinheldur sem ég  þoldi ekki heldur heitar né kalda sturtur.  

Í maí 2005 var ákveðið að taka mjaðmaliðinn og setja í stað hans gervilið.  Eftir mjaðmaliðaskiptin jukust verkirnir og ég fékk spasma við minnstu hreyfingu.
Þann 4 júlí 2005 var ég greind með RSD. Þá hafði átt sér stað vöðvarýrnun, hárin hurfu  á lærinu, táneglur hættu að stækka og voru stökkar, kuldi, brunaverkir sem og lita mismunur sem benti til RDS. Í framhaldi af því fór ég  í tvö Sympatíkusblokk ( sbr. Greinar - 
Pain and autonomic nerve block ) en þá er sprautað niður í taugaenda, og var hita munur á fótleggjum mínum um 4 gráður, þar kom skýringin á  ullarsokkunum því mér er ávallt kalt á fótleggjunum. Einnig fór ég í fjögur alkóhólblokk sem hafði einnig einungis skammvinn áhrif. Alkóhólblokkin er  gert í gegnum tölvusneið myndatöku.

Þann 30. júlí 2005 fékk ég staðfestingu að sjúkdómurinn væri kominn í vinstri fótlegg líka.   Páll Ingvason var taugalæknir minn á Grensási legudeild endurhæfingasviðs Landsspítala Háskólasjúkrahúss. Páll hafði heyrt að Baklofen lyfjadæla hefði verið notuð erlendis með góðum árangri á RSD sjúklingum. Ennfremur  að slík lyfjadæla hefði verið í grædd í mænu á sænskum karlmanni  sem hafði þjáðst af draugaverkjum í fótleggjum sem voru teknir af.   
Ákveðið var að prófa að sprauta Baklofen í mænugöngin, enn gerðar voru til þess þrjár tilraunir og heppnaðist það velþ Ég gat gengið um með hækjur og átti þá 3-4 góða daga meðan efnið var í líkamanum.  Sjálf  aðgerðin var gerð 1. mars 2006   Páll kom daginn eftir og stillti dæluna, eftir það var hækkað í dælunni smátt og smátt og leið mér vel laus við helstu verki sem fylgja því að vera með RSD   "..að vera komin upp á jörðina" er víst besta lýsing á því ástandi sem maður hefur verið í. 


Þann 10. mars byrjuðu spasmarnir aftur, hugsanlega byrjaði ég of skart í allri þjálfun því maður vill gleypa heiminn þegar manni líður vel. Ég tel að ég hafi ofkeyrt mig en svo þegar ég gat farið að stunda sundlaugina fór þetta allt að ganga betur.   Nú er ég  laus við verstu verkina og spasmarnir sama sem hættir. Ég get notið þess að fara í heita sturtu, sund og látið sólina skína á mig án þess að fá kvalarfulla verki. Sjálfsagðir hlutir eins og að nota sæng og ganga í gallabuxum sem ég hef ekki getað gert allan þennan tíma sökum viðkvæmni í húðinni eru að verða hluti af lífinu aftur og þol við snertingu á húðina komið í samt lag. Ég get á ný GENGIÐ UM og þarf ekki að notast  við  hjólastólinn lengur ( sem ég hafði verið bundin við í marga mánuði ) svo má lengi telja.
Eftir að ég fékk dæluna fór ég á Reykjalund í tvo mánuði þar sem ég var í góðri þjálfun sem byggist mikið á sundæfingum og hef ég haldið áfram með þær æfingar eftir að heim kom. Ég finn  að  þrekið í fótunum er alltaf að aukast þrátt fyrir stöku bakslög. Lyfjadælan sem ég fékk í  mars hefur gefið mér von um eðlilegt líf aftur.



Valgerður Laufey Guðmundsdóttir
Ég heiti Valgerður L. Guðmundsdóttir og er 37 ára, við hjónin eigum 4 börn.  Með þessum skrifum mínum  vonast ég til að reynsla mín gagnist öðrum og lýsi hvernig  sjúkdómurinn  er. 
Sjúkrasaga mín byrjaði fyrir um það bil fimm og hálfu ári .... meira

Árný Davíðsdóttir
Ég hefði aldrei getað trúað því fyrir einu og hálfu ári að þetta myndi henda mig. Ég er ein af þeim sem hafa alltaf talið sér trú um að það myndi aldrei neitt koma fyrir þá, en svo gerðist þetta allt í einu... .. meira