
Við leggjum mikið upp úr því að bjóða upp á fjölbreytt og gott úrval íslenskra greina um RSD. Hér í greinasafninu hægra megin á síðunni er að finna greinar úr ýmsu áttu, allar sameinast þær þó bakvið það sama markmið að fræða lesendur um sjúkdóminn RSD og reyna að koma orðum að því sem hefur reynst svo ólýsanlegt.
Hvað er RSD - e. Nönnu Guðnýju Sigurðardóttur sjúkraþjálfara
Sjúkdómurinn sem um ræðir er Reflex Sympathetic Dystrophy - RSD og getur þróast upp frá lítils háttar áverka, eins og tognun á sin eða vöðva, beinbroti, mari á vöðva, liðspeglun og einnig upp frá skurðaðgerðum (Goris og van der Laan, 2001). Íþróttafólk er sérstaklega útstætt fyrir áverkum af þessu tagi. Ekki er með fullu ljóst hverjir þróa þetta ástand með sér í kjölfar slíkra áverka, en síðustu ár hafa verið framkvæmdar rannsóknir með þeim tilgangi að búa til greiningarskema á RSD auk þess að finna orsök fyrir sjúkdómnum.
RSD - Fáheyrt fyrirbrigði?
Sjúkdómurinn sem um ræðir er Reflex Sympathetic Dystrophy (RSD) en nýtt heiti er Complex Regional Pain Syndrome (CRPS) og var það nafn ákveðið af IASP (International Association for the Study of Pain) árið 19941. Í þessari grein mun ég hins vegar notast við eldra nafnið (RSD) þar sem það er þekktara. Sjúkdómurinn er oftast bundinn við einn útlim en getur verið í fleiri útlimum og þróast upp frá lítils háttar áverka eins og tognun á sin eða vöðva, beinbroti, mari á vöðva, liðspeglun og einnig upp frá skurðaðgerðum á viðkomandi útlim
Stendur uppi sem sigurvegari - eftir baráttu við erfiðan sjúkdóm
Árný Davíðsdóttir hefur síðastliðið hálft ár tekist á við erfitt verkefni sem hún er staðráðin í að leysa vel af hendi. Í október rak Árný hægri fótinn í borð en upp frá því komu einkenni hins sjaldgæfa RSD-taugasjúkdóms í ljós. Það tók Árnýju tvo mánuði að fá rétta greiningu á sjúkdómnum en á þeim tíma var hún sárkvalin í fætinum og rúmliggjandi heima hjá sér
Pain and autonomic nerve block
Áhugaverð grein eftir D M Justins um eina af þeim meðferðum sem reyndar hafa verið við þessum erfiða sjúkdómi. Það er stefna þessarrar síðu að bjóða upp á efni á íslensku, á meðan það safnast inn bjóðum við einnig upp á grein hér á ensku sem er lesningarinnar vel virði.
Lífsættir án streitu - þegar álag styrkir en skaðar ekki
Ljóst má vera að líf án álags er varla til. Máltækið sem segir "það þarf sterk bein til að þola góða daga" talar skýru máli. Hóglífi er ekki hollt. Álag að vissu marki, einkum ef það er okkur að skapi, styrkir og bætir lífið. Álag í röngu formi og yfirálag skaðar, jafnvel deyðir.
Hér verður rætt um hvað streita er og hvernig þekking á henni varð til. Rætt er um þreytu og hvíld, hvernig svefnskortur kemur af stað og viðheldur streituástandi. Lýst er streitu á mismunandi háu stigi. Kynntur er mælikvarði sem hver og einn getur notað til að meta sitt eigið streituástand og annarra. Lýst er aðferðum til að leiðrétta streitu. Í lok greinarinnar er í stuttu máli sett fram "uppskrift" að lífsháttum án streitu.
