Í sjúkralegu sinni hafa þær rekið sig á þá miklu vöntun upplýsinga um þennan sjúkdóm sem stjórnar lífi þeirra liðna og óliðna daga og nætur. Skrifaðar- og gefnar hafa verið út miklar fræðigreinar á hinum ýmsu erlendu tungumálum en slíkar geta einmitt verið torlesnar fyrir hið almenna mannsauga sem einfaldlega reynir að skilja það sem hann/hún eða mögulega einhver nákominn er að berjast við.

Ábendingar um greinar og innsent efni er mjög vel þegið öllum stundum og reynum við að birta það sem borist hefur jafnóðum hér á síðunni. Mikill skortur er á upplýsingum um sjúkdómin en leggi sem flestir hönd á plóginn er hægt að koma upp góðu upplýsingasafni sem getur án efa nýst mörgum hvort sem það er sjúklingum, aðstandendum, innan heilbrigðisgeirans og hverjum þeim sem áhuga hefur á að afla sér upplýsingar um RSD.
Hægt er að senda inn póst með ábendingum á tölvupóstfangið rsd@rsd.is , með fyrirfram þökk um stuðninginn.


Sverrir Bergmann læknir,

fjallar um sjúkdóminn RSD í grein sinni hér á síðunni og gefur honum góð skil. Áhugaverð og fræðileg grein um þennan annars dularfulla og illskilgreinda sjúkdóm..


Valgerður Laufey og Árný...

opna hjarta sitt og deila með lesendum mjög persónulegri reynslu sinni í baráttunni við RSD. Gefa innsýn í þann veruleika sem fólk með RSD er að þarf að takast á við frá degi til dags.


Allar ábendingar, greinar og reynslusögur

eru hjartanlega vel þegnar. Hvort sem er til birtingar hér á síðunni eða bara til þess að koma á framfæri vangaveltum eða spurningum.